ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu og gott yfirlit yfir helstu þætti, má segja, greinargerðarinnar fyrir þessari tillögu. Það er rétt hjá hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur sem kom fram í andsvari áðan að það er eðlilegt og skylt að taka þetta plagg í alvöru. Það er framhald af bandalagi yfir hinar pólitísku línur um að koma ríkisfjármálunum í betra horf en þau voru þegar allt hrundi og höfðu verið í 10–20 ár áður. Þetta er skref á þeirri braut sem menn eiga að fagna og þá ætlumst við til þess að það sé hægt að taka plaggið í alvöru.
Hvað sem líður forsendum þess og því sem í því stendur, það var lagt fram 1. apríl á þessu ári, er heilmikið hægt að sjá út úr því um stefnu þessarar ríkisstjórnar þó að það komi ekki fram beint, þó að það komi til dæmis ekki fram í skiptingu á útgjaldaramma sem ekki á að gerast fyrr en í haust. Það er mikill galli við þetta plagg að það skuli ekki fylgja.
Þar á meðal sést það sem hv. þingmaður nefndi réttilega um fjárfestingu, að ekki er gert í raun og veru ráð fyrir neinni aukningu í opinberri fjárfestingu á þessum tíma sem fram undan er. Hins vegar er það rétt sem hv. þm. Willum Þór Þórsson benti á, að gert er ráð fyrir að einkaaðilar auki fjárfestingu sína, en hún er ekki í þeim innviðum sem þingmaðurinn talaði um, í ferðaþjónustunni, samgöngum, menntakerfi, heilbrigðisþjónustunni (Forseti hringir.) o.s.frv. Það er vert að hugsa fyrir því hvernig ástandið verður árið 2019 í þessum greinum ef maður á að taka plaggið í alvöru.