144. löggjafarþing — 124. fundur,  8. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[18:16]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég skal umorða spurninguna: Að því gefnu að menn þyrftu að spara, hvar mundi þingmaðurinn þá spara? Í nefndaráliti minni hlutans sem ég renndi snöggt yfir má lesa með ákveðnum hætti að þar eigi talsvert að gefa í. Öll þekkjum við umræðuna um niðurskurð því að hann hefur sannarlega verið frá hruni og það þurfti að taka á því. Þó að menn séu jafnaðarmenn þarf umræðan um ríkisfjármálin og fjármálin almennt engu að síður að vera af einhverri skynsemi. Við þurfum ekki endilega að kalla það að menn ætli að spara eða hagræða, en hvar mundi þingmaðurinn forgangsraða?