144. löggjafarþing — 124. fundur,  8. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[18:35]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég þurfti að láta segja mér það tvisvar þegar það fréttist að jafnvel eftir atburði dagsins skyldi ríkisstjórnarmeirihlutinn vilja halda þessu máli á dagskrá og reyna að fá það afgreitt óbreytt. Það er í besta falli algjörlega fráleitt miðað við forsendur ríkisfjármálaáætlunarinnar.

Það er alveg rétt sem hv. þm. Mörður Árnason rakti áðan. Ríkisfjármálaáætluninni er ætlað að varpa ljósi á það sem fram undan er í ríkisrekstrinum. Hún er ekki bara upp á punt og ég hef auðvitað áhyggjur af því ef meiri hluti fjárlaganefndar umgengst regluverkið svo beinlínis bara út frá forminu einu. Hvernig mun þá meiri hluti fjárlaganefndar fara með frumvarpið um opinber fjármál sem hér er til umræðu líka og svo lögin í fyllingu tímans? Verður það líka bara upp á formið? Mun ekki þurfa neitt efnislegt inntak fyrir ákvarðanir þingsins þar heldur? Það er algjörlega fráleitt að samþykkja ríkisfjármálaáætlun sem stenst ekki. Hún gengur ekki upp (Forseti hringir.) miðað við forsendurnar sem við vitum í dag og eðlilegt að hún verði kölluð til baka og ný útgáfa hennar komi inn í þingið.