ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Varðandi kjarasamninga og skattstefnu þessarar ríkisstjórnar langar mig að heyra viðhorf hv. þingmanns til eins. Skattstefna hægri manna var skiptimynt í kjarasamningum og hefur vissulega áhrif á hvernig þetta plagg kemur út og hvert þessi skattstefna leiðir okkur í framtíðinni.
Hvernig ríma þessi frumgjöld sem fara lækkandi, sem eru bara fjárfestingar í innviðum samfélagsins, við samgönguáætlun og við þær kjarabætur sem við reiknum með að verði hjá þeim hópum sem eru að reyna að semja og við kjör aldraðra og öryrkja? Rímar þetta saman í raun og veru nema það verði ekki nema 2% kaupmáttaraukning sem allir verða að sætta sig við?