ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Frú forseti. Fyrst vil ég vekja athygli á því, og ég vona að menn taki það ekki óstinnt upp fyrir mér, að undir liðnum um fundarstjórn forseta áðan voru fleiri í salnum en undir þessu máli sem við erum að ræða núna. Ég vil vekja athygli á því og vona að það verði ekki tekið illa upp.
Ég vil hins vegar nota þetta tækifæri og spyrja fyrrverandi fjármálaráðherra, Oddnýju G. Harðardóttur, sem nefndi í andsvari áðan að hún vildi sannarlega aga í ríkisfjármálum. Mér er í fersku minni síðan síðast þegar ég sat inni sem varaþingmaður þingsályktunartillaga sem heitir Bráðaaðgerðir í byggðamálum frá Samfylkingunni því að hér stendur í liðnum fjárfestingar að ljóst sé að mikil þörf sé í fjárfestingum eftir erfið ár o.s.frv., fyrirliggjandi þörf sé víða í uppbyggingu heilsugæslu, hjúkrunarheimila, samgangna og innviða ferðaþjónustu, svo eitthvað væri nefnt, og ég vil spyrja þingmanninn hvort eitthvert kostnaðarmat liggi þar að baki.