ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Forseti. Í fyrri umr. um þetta mál, ríkisfjármálaáætlun til fjögurra ára, 2016–2019, gat ég þess að mér þætti mjög mikið framfaraspor að þessi áætlun væri nú lögð fram hér í fyrsta sinn. Vissulega hafa verið lagðar fram einhverjar lauslegar áætlanir fyrr en þetta er í fyrsta skipti samkvæmt lögum sem þessi ríkisfjármálaáætlun er lögð fram. Það er mikið framfaraskref og leiðir okkur inn á þá braut að taka ríkisfjármálin fastari tökum og horfa til framtíðar.
Komið hefur fram hjá þingmönnum hér áður og ég er sammála því að vissulega vildum við hafa þessa áætlun nákvæmari, vildum að henni væri skipt niður í ramma þannig að það væri ljóst hvernig lögð væri áhersla á hina ýmsu málaflokka og þar fram eftir götunum, en ég vil horfa í gegnum fingur mér með það og segja: Þetta er fyrsta áætlunin sem kemur fram og það er ekki nema eðlilegt að hún sé ekki nákvæmlega á því formi sem við hefðum flest kosið. Það þarf að læra í þessum efnum eins og öðrum.
Allar áætlanir breytast með tímanum, það kemur eitthvað upp og það þarf að aðlaga þær. Undirstaða allra áætlana er þó þær forsendur sem þær byggja á. Mér sýnist það vera eins og kom fram hér í umræðum í gær að meðal annars og kannski sérstaklega núna vegna þeirra gleðitíðinda, sem ég tek undir með öðrum þingmönnum að eru náttúrlega gleðitíðindi, að hér er nú komin aðgerðaáætlun um að losa gjaldeyrishöftin — en eins og hefur komið fram líka breytir það mjög svo forsendum fyrir þessari áætlun sem við erum að ræða hér. Ég velti því sannarlega fyrir mér í gær hvort ég gæti haldið hér þá ræðu sem ég hafði hugsað eitthvað um yfir helgina, hvernig hún ætti að vera, vegna þess að mér finnast forsendurnar fyrir ríkisfjármálaáætluninni brostnar að svo miklum hluta núna að mér finnst það eiginlega óvirðing við alla vinnuna sem unnin hefur verið að við höldum áfram að ræða þetta á óbreyttum grunni. Mér finnst það líka óvirðing við okkur í þinginu, okkur þingmenn, að við séum í þessari umræðu vegna þess að það vantar svo mikið í undirstöðuna núna. Þá getur maður líka sagt: Af hverju er kerlingin þá að halda þessa ræðu fyrst henni finnst hún vera að tala út í bláinn eða tala um eitthvað sem ekki er alveg grunnur fyrir? Ég ætla að segja að þrátt fyrir að þessar undirstöður séu farnar eru hins vegar stórpólitísk tíðindi í þessari áætlun, eins og hlýtur að vera mikill hluti af ríkisfjármálaáætlun. Það er framtíðarsýn þeirra stjórnvalda sem nú eru við völd um ríkisfjármálin og eins og sagt hefur verið eru peningar afl þess sem gera skal. Þess vegna er þetta líka forsögn um hverjar eiga að vera áherslur ríkisstjórnarinnar á næstu árum.
Þar sem ég er mjög ósammála og mér finnst geigvænlegt sumt sem kemur fram í þessari áætlun finnst mér rétt að halda þessa ræðu hér vegna þess að ég er hrædd um að jafnvel þeir 30 milljarðar, sem mér sýnist við vonandi eiga von á ef við getum lækkað vaxtagreiðslur ríkisins, og þó við vitum ekki hvernig ríkisstjórnin hugsar sér að ráðstafa þeim — ég er samt sem áður hrædd um að hinar stóru pólitísku línur sem sýna sig í þessari tillögu yrðu ekki mikið öðruvísi en þær eru núna. Þess vegna ætla ég að halda þessa ræðu. En mér finnst það óvirðing við það mikla verkefni sem hér liggur fyrir, við það mikla fyrsta skref sem stigið er með því að leggja fram ríkisfjármálaáætlun, þótt ófullkomin sé. Það finnst mér frá upphafi af því að hún mætti vera ítarlegri, ég horfi í gegnum fingur mér með það, en mér finnst það óvirðing við þetta verk og mér finnst það svolítið lýsa viðhorfinu til þess sem fram fer í þingsal, að þeir sem ráða hér för segi: Já, þetta verður rætt áfram og svo virðist sem meiri hlutinn ætli að samþykkja þessa áætlun þó að það sé ljóst að mjög veigamiklar forsendur fyrir því sem hún er byggð á hafi breyst. Ég vann við áætlanagerð í mörg ár og veit að forsendurnar skipta meginmáli.
Eitt af því sem þessi ríkisfjármálaáætlun ber með sér er að það á ekki að nota ríkisfjármálin til að auka á jöfnuð í samfélaginu frekar en aðrar aðgerðir þessarar ríkisstjórnar hafa gert til þessa. Ég er jafnaðarmaður og tala hér sem þingmaður Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands. Þá er kannski ekki furða þótt ég horfi mikið til jöfnuðar í þjóðfélaginu. Stundum lætur fólk eins og það sé gífurlega merkilegt að jöfnuður hér á landi sé meiri en gerist almennt meðal þjóða. Sumir láta meira að segja í það skína að nóg sé komið af þessu fyrirbrigði, jöfnuðinum. Mér virðist hins vegar liggja í hlutarins eðli að jöfnuður er meiri hjá þjóð sem telur rétt um 320 þúsund og hefur tileinkað sér aðra þjóðfélagsuppbyggingu en til dæmis Mónakó eða Liechtenstein, að þar sé jöfnuður meiri en hjá öðrum þjóðum. Það er einkenni okkar þjóðar og við eigum að vera stolt af því og halda í það með öllum ráðum. Þótt jöfnuður sé meiri á meðal okkar litlu þjóðar en almennt gerist er ekki þar með sagt að ekki sé ástæða til að auka enn á hann.
Á þensluárunum fyrir hrun jókst hér ójöfnuður. Ágætur maður orðaði það svo í mín eyru að hann skildi ekki hvað fólk ætlaði að gera við alla þá peninga sem það lagði allt kapp á að sanka að sér. Í því sýkta andrúmslofti sem varð í því ofurríkisdæmi jókst ójöfnuðurinn á þensluárunum fyrir hrun. Í hruninu hvarf mikið af þessum auðæfum þó að enn sé mikið eftir af þeim og jöfnuður varð því af þeim sökum meiri en hann hafði verið fyrir hrun. Það gerðist ekki einungis hér á landi heldur einnig í öðrum löndum sem urðu fjármálakreppunni að bráð þó að lönd yrðu það vissulega í mismiklum mæli og hvergi jafn illilega og hér. Við getum líka hreykt okkur af því, þó að það sé náttúrlega sannarlega ekki til að hreykja sér af, að við eigum þrjú af stærstu tíu gjaldþrotum í heimi, við, þessi litla þjóð. Það er ekki til að hreykja sér af heldur ætti frekar að vera víti til varnaðar. Og það er merki um það hvernig farið getur ef kerfið og við, fólkið í landinu, sofnum á verðinum. Það er nokkuð sem aldrei má gerast aftur.
En jöfnuður hefur ekki bara aukist hér á undanförnum árum vegna þess að auðæfi hurfu heldur einnig vegna þess að aðgerðir ríkisstjórnarinnar, vinstri stjórnarinnar, í kjölfar efnahagshrunsins höfðu að leiðarljósi að reyna að verja þá sem lakast voru settir. Einmitt þess vegna ríður á að bæta kjör þeirra nú þegar rofað hefur til í efnahagslífinu, og meira að segja áður en aðgerðaáætlun um losun haftanna var lögð fram boðaði hæstv. fjármálaráðherra betri tíð en nokkru sinni hér hjá okkar þjóð.
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins gerði góða grein fyrir því hér í síðustu viku hvernig jöfnuður hefur aldrei mælst meiri hér á landi en árið 2014. Það var ekki annað á henni að skilja en að þetta væru góð tíðindi. Þess vegna fyndist mér fróðlegt að heyra viðhorf hennar til ríkisfjármálaáætlunarinnar sem við höfum nú til umræðu. Þar er boðað að kaupmáttur opinberra starfsmanna aukist um 2% umfram verðbólgu á árunum 2016–2019 en bætur almannatrygginga hækki á sama tíma um 1% umfram verðbólgu. Ekki mun það viðhalda þeim jöfnuði sem náðst hefur og gerðist meðal annars með ráðstöfunum síðustu ríkisstjórnar. Einnig væri fróðlegt að heyra viðhorf hv. þm. Þórunnar Egilsdóttur og flokkssystkina hennar og kannski ekki síst flokkssystra á því að einfalda eigi skattkerfið sem þýðir einfaldlega að dregið verði úr tekjujöfnunarmætti tekjuskattskerfisins. Hvað finnst þeim um að það eigi að draga úr samneyslunni? Það getur einungis komið niður á opinberri þjónustu, heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu. Hvað finnst þeim sem kalla á samgöngubætur um að þeir fjármunir sem ætlaðir eru til fjárfestinga samkvæmt þessari áætlun duga ekki fyrir afskriftum? Með öðrum orðum á að ganga á innviðina. Landspítalans sér hvergi stað í áætluninni og ekki heldur þeirra fjárfestinga í húsnæði sem ríkisstjórnin hefur boðað.
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sagði í síðustu viku að við jafnaðarmenn sem vildum halda í þrepaskiptan tekjuskatt ættum að halda okkur á mottunni vegna þess að í samningagerð á almennum vinnumarkaði hefðu verkalýðsfélög og samtök atvinnurekenda fallist á þessa gjörð sem hluta af samningsgerðinni. Nú væri óþarft að tala meira um það. Þetta er sami þingflokksformaðurinn og sagði réttilega fyrr í vetur að okkur kæmi ekki við hvort samið yrði um krónutölu- eða prósentuhækkun í almennum kjarasamningum. En okkur hér kemur við hvernig skattkerfið er og það er grafalvarlegt að valdaflokkar noti kjarasamninga til að koma fram pólitískum stefnumálum sínum eins og uppbyggingu skattkerfisins. Auðveldlega hefði mátt koma fram skattalækkunum þeim sem lagðar eru til og mest hefðu gagnast miðtekjufólki. Auðveldlega hefði mátt koma fram skattalækkunum hjá þessu fólki án þess að breyta skattkerfinu eins og nú er áætlað. Vilji ríkisstjórnarinnar stóð hins vegar ekki til þess. Það er mergurinn málsins.
Valdfrekjuflokkarnir, svo ég noti orðalag hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar, skirrast ekki við að þrýsta pólitískum markmiðum sínum í gegn við þessar aðstæður. Þeir notfæra sér grafalvarlega stöðu á vinnumarkaði til þess. Hvað hefði hv. þingflokksformanni þótt ef launamenn hefðu sagt: Nei, við viljum halda í þrepaskiptingu tekjuskattsins? Sannarlega hefði ekki legið á því að samningamenn hefðu einhver önnur markmið en að ná samningum fyrir umbjóðendur sína. Þeir hefðu verið taldir bæði óalandi og óferjandi. Það hefði verið sagt: Þeir eru í pólitík, það er það eina sem skiptir þá máli. Og að þeir vildu stefna efnahagslífinu öllu í voða.
Virðulegi forseti. Ég vil segja það hér að ég mun berjast fyrir þrepaskiptum tekjuskatti héðan í frá sem hingað til, enda er það öflugt tekjujöfnunartæki sem ber að nota í þeim tilgangi.
Þá ætla ég aftur að koma að því sem ég sagði hér í upphafi, að forsendur fyrir áætlunum eru grunnur að allri áætlanagerð. Þess vegna vil ég ítreka að ég tel það vanvirðingu við það mikla verk sem hér liggur fyrir okkur að við ræðum það þegar forsendur hafa breyst eins og raun ber vitni. Ég vil sérstaklega nefna aðgerðaáætlunina um losun hafta. En það er fleira. Það eru kjarasamningarnir, það er spurningin um bankasöluna sem er í þessu frumvarpi. Landsfundur Framsóknarflokksins samþykkti að hér ætti að stofna samfélagsbanka sem getur verið gott mál. Hvernig getur sá flokkur þá staðið að ríkisfjármálaáætlun til þriggja ára þar sem gert er ráð fyrir að bankinn sem átti að vera samfélagsbanki sé seldur? Mér er spurn: Átta þingmennirnir sem hér ætla að samþykkja þessa áætlun — ég mun ekki samþykkja hana en ég fagna því að hún er lögð fram — á því hvað stendur í áætluninni? Þetta eru þingmenn sem koma hér upp tvisvar í viku helst ef þeir geta og flytja tveggja mínútna ávörp um hvað allt eigi að vera gott í þessu þjóðfélagi og hvernig sé búið að bjarga heimilum landsins. Það er náttúrlega búið að bjarga ríku heimilunum meira en þeim sem minna mega sín. Það er ekki enn búið að segja neitt um það hvernig á að hjálpa fólki eða koma til móts við fólk sem er á leigumarkaði. Það kemur fram í öllum könnunum að er sá hópur fólks sem má sín minnst í þessu þjóðfélagi. Þá koma framsóknarkonurnar, sérstaklega þær — mér finnst leitt að segja það en það eru sérstaklega þær, og framsóknarkarlarnir elta þær — og segja: Þetta mun koma fram. Hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hefur haft tvö ár til að koma fram með þessar tillögur og þær eru ekki enn komnar fram. Nú eru þær sagðar hluti af kjarasamningunum og það er ekkert um það í þessari áætlun, ekki neitt. Ætla þessir þingmenn að samþykkja þetta þegjandi og hljóðalaust? Stundum dettur mér í hug að fólk átti sig ekki alveg á hvað er í gangi hérna fyrir utan störf þingsins. Þetta fólk sést ekki í þingsal eins og ég hef nefnt áður, það er einn framsóknarþingmaður (Forseti hringir.) sem sinnir þessari áætlun hér og enginn annar.