ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Stutta svarið: Nei, virðulegi forseti. Það er ágætt þegar maður vill vera ábyrgur og segja: Við þurfum norræna vinnumarkaðsmódelið, við þurfum það. En við höfum ekkert af því sem hin norrænu samfélögin hafa. Við erum með miklu minni samneyslu og ef samneyslan eða samfélagskostnaðurinn er minni þýðir það að við ætlum að borga lægri laun. Við erum með miklu verra heilbrigðiskerfi. Við látum fólk borga miklu meira þegar það veikist. Hvernig í ósköpunum geta menn svo komið og heimtað að við séum með norrænt vinnumarkaðsmódel þegar við erum ekki með neitt af því sem hin Norðurlöndin eru með í sínu kerfi? Það gengur ekki upp.