144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[12:08]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Árna Páli Árnasyni fyrir ræðuna. Ég verð að taka undir þær efasemdir og vangaveltur sem hann setti fram í máli sínu um það hversu mikið sé hægt að byggja á þessari ríkisfjármálaáætlun vegna þeirra miklu breytinga sem eru að verða núna vegna bæði kjarasamninga og fram kominna frumvarpa sem varða ríkisfjármálin og gjaldeyrismálin. Hann fór vel yfir þetta og mér fannst skemmtileg þessi samlíking með umræðunni um fjárlögin frá haustinu 2008, að þar hefði verið um að ræða 1. umr. um fjárlögin. Hér erum við hins vegar í síðari umr. um þingsályktunartillögu sem þýðir að þetta er bara síðasta umræðan, þetta er bara umræðan sem stendur til boða. Eru það ekki enn frekari rök fyrir því af hverju ætti að gera hlé á umræðunni og nefndin að kalla málið inn til sín til að gera breytingar á nefndarálitinu og bæta við þeim nýju forsendum sem hafa komið fram á síðustu dögum? Ef það verður ekki gert núna, er þá ekki alveg réttur skilningur hjá mér að þá verði það aldrei gert?