144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[12:40]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst spyrja hv. þingmann, vegna þess sem hann rakti um þörfina á því að það þyrfti að endurgera þessa áætlun, hvort hann sem þingreyndastur okkar hér muni dæmi þess að áætlun hafi verið samþykkt á Alþingi með forsendum sem ekki standast. Hefur verið samþykkt áætlun sem gerir ráð fyrir einhverju sem staðreyndir hafa komið fram um að geti ekki staðist eins og bara það sem hér hefur verið nefnt í umræðunni í dag um tilkynninguna frá í gær og svo ný húsnæðisútgjöld ríkisstjórnarinnar?

Hitt sem ég vildi spyrja: Man hann dæmi þess að stjórnarflokkur styðji áætlun af þessum toga sem inniheldur áform sem sami stjórnarflokkur hefur lýst yfir að hann styðji ekki? Þá er ég að vísa til þess að flokksþing Framsóknarflokksins er búið að samþykkja að ekki verði af sölu Landsbanka Íslands en í þessari ríkisfjármálaáætlun felst að 30% hlutur verði seldur í Landsbankanum. Man hann dæmi annars tveggja af þessu, sem sagt að stjórnarflokkur hafi samþykkt mál sem hann hefur efnislega gefið yfirlýsingar um að hann styðji ekki annars staðar, á flokksþingi fyrir bara nokkrum vikum, og svo hins vegar að áætlun sé samþykkt með forsendum sem ekki standast?