144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[13:40]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur fyrir ræðuna og taka undir það með henni að ég tel algjört ábyrgðarleysi að afgreiða frá Alþingi þessa ríkisfjármálaáætlun eins og hún stendur. Eins og hv. þingmaður fór yfir hafa forsendurnar breyst ansi mikið síðustu daga og öllum ætti að vera ljóst að áætlunin fæst engan veginn staðist. Allt of margir óvissuþættir standa út af.

Hv. þingmaður fór í upphafi ræðu sinnar um það nokkrum orðum að hún hefði áhyggjur af þeim hægagangi sem í þessari áætlun væri kynntur á byggingaráformum um Landspítala og nefndi þar einnig áhyggjur sínar af stöðu heilbrigðismálanna almennt. Mig langar að heyra um sýn eða skoðun hv. þingmanns í tengslum við þetta á þeim stefnumiðum sem lögð eru fram í þingsályktunartillögunni um útgjaldaþróun þar sem segir á bls. 38 að hlutfall frumgjalda án óreglulegra liða af vergri landsframleiðslu eigi að lækka um 1% og samneyslan, þ.e. það hver raunverulegur rekstur ríkisins eigi að vera orðinn árið 2019, eigi einungis að vera 23,4%. Hvað hefur hv. þingmaður um þessar (Forseti hringir.) hagtölur að segja?