ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Í upphafi ræðu sinnar orðaði hv. þingmaður það einhvern veginn á þá leið að þessi ríkisfjármálaáætlun miðaði að því að stefna ríkisstjórnarinnar væri að halda hér upp góðu menntakerfi og góðu heilbrigðiskerfi. Síðan sagði hann í lok ræðu sinnar að hann vildi gjarnan gera hlut öryrkja og aldraðra betra en hann er í dag. Nú er allt þetta fjármagn til allra þessara hluta hluti af samneyslunni og samkvæmt þessari ríkisfjármálaáætlun er hlutfall samneyslunnar að lækka sem hlutfall af þjóðarframleiðslu. Það á að lækka á (Forseti hringir.) þessum fjórum árum. Hvernig getur þetta samrýmst þessum ætlunum og vilja þingmannsins?