144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[14:30]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég held að þetta mál hafi svo sem verið eins vel unnið og hægt var miðað við þær forsendur sem lágu fyrir þegar þessi þingsályktunartillaga varð til. Ég held að kannski sé ekkert mjög mikið hægt að kvarta undan því. Ég get hins vegar svarað hinni beinu spurningu hans á þann hátt að mér finnst rétt að ræða það mál við aðra nefndarmenn á eftir. Síðan verður væntanlega tekin ákvörðun í framhaldi af því. Hver hún verður veit ég ekki en mér finnst alveg full ástæða til að ræða það mál.