144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[15:39]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Forseti hefur dagskrárvaldið hér í þinginu og ég óska eftir því að forseti geri hlé á þessum fundi til að ganga úr skugga um og kanna það fyrir okkur hv. þingmenn hvernig á því stendur að ekki er búið að boða til formannafundar eins og rætt var um, á fundi formanna þingflokka með forseta í gær, að ætti að gera í dag. Hvernig stendur á því að ekki er búið að boða til fundarins? Hvaða skilaboð er verið að gefa okkur með því að halda ekki fundinn, með því að kalla ekki saman formenn stjórnarflokkanna til að fara yfir mál og lenda þeim? Hvað gengur mönnum til að nýta ekki það góða andrúmsloft sem hér var í gær til að leysa ágreining um þinglok?