ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Frú forseti. Ég verð að taka undir með þeim sem hér ræddu um fundarstjórn forseta, og eins og hefur svo sem komið fram í ræðum margra og í andsvörum, að málið er orðið verulega bjagað, svo ekki sé meira sagt, í ljósi þess sem hér hefur komið fram. Af þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur boðað er alveg ljóst að áætlunin heldur ekki.
Mér fannst ágætissamtal eiga sér stað hérna áðan eins og það að auðvitað er æskilegt að efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd fundi saman. Ég held að fjárlaganefnd setji ekki neitt niður við það eða þurfi að hafa af því einhverjar áhyggjur. Ég held að það sé bara hið besta mál. Þetta eru nefndirnar sem fjalla um tekjurnar og um heildarsamhengið þannig að það er æskilegt að þær taki að minnsta kosti einn fund saman, bæði um þessi mál og svo kannski gjarnan að hausti líka þegar verið er að fjalla um þessa pósta.
Ég endurtek það sem kom fram áðan, minni hlutinn hefur óskað eftir því að fjármálaráðherra komi á fund fjárlaganefndar sem boðaður hefur verið kl. 8 í fyrramálið og fari yfir þessi mál með okkur, hvaða áhrif hann telur að þetta hafi á ríkisfjármálaáætlun sem og yfirstandandi fjárlagaár og það næsta. Ég held að það sé ómögulegt annað en að verða við því. Ef ráðherrann getur ekki mætt í fyrramálið óskum við samt eftir því að fá að ræða þetta á fundinum og kannski hugleiða næstu skref.
Mig langar aðeins að koma inn á húsnæðisfrumvarpið sem var lagt hér fram í gær. Í því samhengi og í samhengi við ríkisfjármálaáætlunina er hér sem fylgiskjal 1 yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Þar er liður nr. 3 sem heitir Stuðningur við almennan leigumarkað þar sem farið er yfir það með hvaða hætti hann á að bera að. Síðan er hér 14 síðna kostnaðaráætlun frá fjármálaráðuneytinu sem er næstum því jafn stórt plagg og frumvarpið, svo umfangsmikið er það. Það má segja að kostnaðarmatið fari ekki góðum höndum um frumvarpið. Það vekur upp þær spurningar hvort þetta er raunverulega eitthvert mál sem á að taka fyrir, ræða og afgreiða eða hvort það á bara að leggja það fram til sýnis. Mér finnst það mjög mikilvægt í ljósi þess að ekki er gert ráð fyrir því í þessari ríkisfjármálaáætlun og að miðað við fyrirliggjandi kostnaðarfrumvarp er eiginlega alveg svakalega óábyrgt að sýna ekki fram á með hvaða hætti þetta skuli fjármagnað. Mig langar að vitna, með leyfi forseta, í bls. 51:
„Eins og áður segir er þó ekki að finna neina tölulegu greiningu í greinargerð frumvarpsins á því hversu mikill munur er á milli núverandi húsaleigubótakerfis og vaxtabótakerfis og hvaða bil frumvarpinu er ætlað að brúa með nýja húsnæðisbótakerfinu.“
Þetta er dæmi um það hvernig mér finnst fjármálaráðuneytið tala um þetta frumvarp. Á bls. 58 segir að áætlað sé að brúttóútgjöld ríkisins aukist um nálægt 2 milljarða og verði um 6,6 milljarðar. Þetta er um það bil 46% útgjaldaaukning árlega miðað við húsaleigubótaútgjöldin á árinu 2014. Síðan segir, með leyfi forseta:
„Til viðbótar við aukin útgjöld ríkisins vegna greiðslu húsnæðisbóta hefur velferðarráðuneytið sett fram lauslega áætlun um að yfirfærsla á framkvæmd almennra húsaleigubóta frá sveitarfélögum til ríkisins muni hafa í för með sér að ráða þurfi í átta ný stöðugildi hjá [Tryggingastofnun ríkisins] miðað við að tiltekið vinnuframlag þurfi í tengslum við hverja bótaumsókn.“
Síðan er sagt að þessi kostnaðarauki telji um það bil 80 milljónir á ári og svo 20 millj. kr. einskiptiskostnað á næsta ári. Þá er kostnaðaraukningin orðin í kringum 6,7 milljarðar vegna frumvarpsins.
Hér segir líka um fjármögnun húsnæðisbótakerfisins að ekki hafi verið tekið á því og sé ekki tekið á því í þessu frumvarpi hvernig eigi að fara með greiðslur til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í tengslum við húsnæðisbæturnar. Það eru 4,5 milljarðar í fjárlögum þessa árs og áfram segir, með leyfi forseta:
„Óhjákvæmilegt er að ganga frá þessum atriðum með samráði milli viðkomandi ráðuneyta og samkomulagi við sveitarfélög áður en frumvarpið verður lagt fram og tekið til afgreiðslu á Alþingi þannig að fyrir liggi hvernig þau verði leidd til lykta enda mundu þau útgjöld að öðrum kosti haldast óbreytt.“
Hér er búið að leggja fram frumvarp og mér vitanlega er þetta ekki frágengið. Ef hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra ætlar þessu frumvarpi umræðu og afgreiðslu á þessu þingi er aldeilis óhætt að gera grein fyrir því hvernig á að fjármagna þetta. Eins og ég segi er ekki tekið á því í þessari ríkisfjármálaáætlun og það er meira að segja tekið fram á bls. 58 og 59 að ekki sé gert ráð fyrir þessu í ríkisfjármálaáætlun. Afkoma ríkissjóðs gæti þá orðið lakari sem þessu nemur og það munar um minna. 2 milljarðar geta nýst í ýmislegt annað fyrir utan annan kostnað sem ég taldi upp áðan. Hér er talað um að ef þetta frumvarp verður samþykkt eins og það kemur hér fyrir og ekki verði einhverjar mótvægisaðgerðir á móti þessu, þ.e. dregið úr öðrum útgjöldum, þýðir það bara niðurskurð. Hvar þá helst? Það hlýtur þá að vera í velferðarkerfinu, það er langstærst. Það þyrfti að minnsta kosti að rökstyðja það ef það ætti að gera það annars staðar eða þá einhverjir viðbótarskattar verða lagðir á. Það er sagt í þessari kostnaðarumsögn. Mér finnst lágmark að hæstv. fjármálaráðherra geri grein fyrir því hvort hann telji framkvæmanlegt að afgreiða þetta húsnæðisfrumvarp.
Það kemur nefnilega fram líka eins og ég vitnaði til áðan varðandi jöfnunarsjóðinn að það þyrfti að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga í því skyni að lækka framlagið úr ríkissjóði. Það hefur ekki verið gert og mér sýnist ekki líta út fyrir að af því verði. Það sem er merkilegt í þessu öllu saman er að hér segir, með leyfi forseta:
„Í þriðja lagi gefur greining á nýjum húsnæðisbótum það til kynna að hlutfallslega verður aukning á niðurgreiðslu húsaleigu meiri eftir því sem tekjur heimila eru hærri.“
Þetta er það sem við höfum sagt mikið í stjórnarandstöðunni en hefur verið töluvert blásið á, sérstaklega af hálfu framsóknarmanna en þó líka af vörum sumra sjálfstæðismanna. Svo segir:
„Ekki verður séð að sú útkoma væri í samræmi við markmið frumvarpsins um að auka stuðning við efnaminni einstaklinga og fjölskyldur.“
Þetta frumvarp fær algjöra falleinkunn frá fjármálasviði fjármálaráðherra og er bagalegt í sjálfu sér að ekki skuli liggja hér fyrir hvort þetta sé frumvarp sem í alvörunni á að taka fyrir eða ekki í ljósi þess að hér erum við að fjalla um stefnu ríkisstjórnarinnar til ársins 2019 í ríkisfjármálaáætlun eins og hér hefur verið sagt.
Það er líka eitt mjög athugunarvert við þessa ríkisfjármálaáætlun, að engin greining liggur fyrir á því hvaða áhrif þessi ríkisfjármálaáætlun hefur á einstaka þjóðfélagshópa eða þá sem eiga að standa að verðmætasköpun í samfélaginu. Það er risastórt mál og minnir mann helst á skuldaniðurfellingarfrumvarp ríkisstjórnarinnar þar sem enn hafa ekki fengist svör við því með hvaða hætti þetta leggist á mismunandi sveitarfélög, mismunandi kjördæmi eða eftir aldurshópum o.s.frv. Það bíður og fjármálaráðherra ætlaði að flytja hér skýrslu í maí sem er ekki komin enn og um daginn talaði hann um að líklegast gæti hann þá ekki flutt hana fyrr en eftir að lagðir hefðu verið á skattar. Þar fóru menn út í aðgerðir án þess að vita hvaða afleiðingar það hefði nema að mjög litlu leyti. Mér finnst það virðingarleysi við bæði það frumvarp sem félags- og húsnæðismálaráðherra leggur hér fram og einnig við ríkisfjármálaáætlunina sem er þarft og gott framtak að leggja fram. Þó að ég hefði viljað sjá hana hér með sviðsmyndum líka er auðvitað ekki gott að við séum hér að ræða áætlun sem hægt er að gera breytingar á, í það minnsta í formi nefndarálits, og gera grein fyrir því að við séum að fjalla um þetta af einhverri alvöru en ekki bara af því að það stendur í þingskapalögum að slíkt megi gera.