144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[16:28]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir liðnum um fundarstjórn forseta í ljósi þess sem ég sagði áðan og varðar það að orðið hefur verið við þeirri ósk að fá ráðherra til fundar við okkur í fyrramálið út af þessari þingsályktunartillögu um ríkisfjármálaáætlun. Þá er auðvitað æskilegt að við stöðvum þessa umræðu núna, geymum hana og tökum önnur mál á dagskrá þannig að við getum tekið umræðuna upp aftur ef til koma nýjar forsendur sem ég geri ráð fyrir að verði þá upplýst um á fundinum í fyrramálið.

Við höfum áður beðið um að málið verði tekið af dagskrá vegna þess að það er fallið að svo mörgu leyti, en enn frekar núna þegar ráðherra hefur fallist á það, að mér skilst, að koma til fundar við fjárlaganefnd í fyrramálið. Þá er enn þá meiri ástæða til að við leggjum málið til hliðar. Ég bið forseta um að kannað verði hvort ekki sé hægt að verða við þeirri ósk í ljósi þess að ráðherra hefur verið boðaður á fund fjárlaganefndar í fyrramálið.