144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[16:51]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Við erum á þinginu til að leysa mjög stór og vandmeðfarin verkefni sem var komið með í þingið í gær og við höfum öll lýst yfir vilja til að gera það á eins faglegan hátt og mögulegt er. Á sama tíma er hv. þm. Bjarni Benediktsson búinn að sitja í þinghúsinu í allan dag eins og ég og eins og fleiri formenn flokkanna og ekki hefur verið boðað til til sameiginlegs fundar með formönnum flokkanna. Mér finnst svona vinnubrögð ekki í lagi. Nú er klukkan að verða fimm og ekki er enn búið að boða til þessa fundar sem er forsenda þess að við höldum áfram störfum. Ég legg til, forseti, að þessum fundi verði slitið nú þegar. Samkomulagið er úti.