144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[17:33]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Meiri hluti nefndarinnar og formaður hennar gæti þannig séð kallað til fundar núna jafnvel þó að það sé þingfundur. Gerðar eru einhverjar undanþágur á því, þannig að heimildin er til staðar. Það er hægt að kalla málið til nefndar ef forseti ákveður ekki sjálfur að vísa málinu þangað, þannig að þetta er alveg hægt. Það virðist bara ekki vera vilji fyrir því.

Við höfum algjörlega réttmætar ástæður fyrir því að kalla eftir að þetta sé unnið svolítið faglegar, sér í lagi núna þegar verið er að gera þetta í fyrsta skipti, að það séu þá alla vega nefndarálit með umsögnum um þá þætti sem skapa mesta óvissu, um þætti sem hafa breyst mjög mikið frá því málið kom fram.

En ókei, ekki virðist vera vilji fyrir því, þá verður svo að vera, en þá sitja menn, þegar þeir ætla að greiða þessu atkvæði, uppi með þingsályktun til stjórnvalda um að þau skuli hegða sér á grundvelli sem er gjörsamlega brostinn, hafandi haft öll tækifæri til að leiðrétta þann grundvöll.