144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

um fundarstjórn.

[20:13]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég skil ekki alveg þá stöðu sem upp er komin. Það eru stórmál á leiðinni inn í þingið á morgun, mál sem við erum meira og minna sammála um að þurfi alla okkar athygli. Þverpólitísk samstaða er um að taka þau mál alvarlega og reyna að afgreiða þau með myndarskap.

Hvað er þá verið að láta okkur ræða hér dag eftir dag? Það er verið að láta okkur ræða mál eins og það sem var síðan tekið af dagskrá áðan, ríkisfjármálaáætlun sem augljóslega stóðst engan veginn og ekki var fræðilegur möguleiki að fylgja eftir. Menn hafa séð að sér og tekið það mál af dagskrá og vísað því aftur til nefndar eins og við kölluðum eftir til að gera það að einhverju leyti raunhæfara.

Hvað núna? Við höldum bara áfram eins og ekkert hafi í skorist og menn eru ekki einu sinni tilbúnir að setjast niður og ræða við okkur um forgangsmálin.

Virðulegi forseti. Þetta þing er fullkomlega stjórnlaust. Menn vita ekkert hvað þeir vilja. Menn hafa ekki hugmynd um það vegna þess að það er engin forusta fyrir þessari ríkisstjórn og þessum stjórnarmeirihluta. Eða þá að menn eru fullkomlega vanhæfir til þess að halda utan um mál og skoða (Forseti hringir.) heildarmyndina.