um fundarstjórn.
Forseti. Mér er enn og aftur misboðið. Klukkan fimm náði ég loks tali af formanni Sjálfstæðisflokksins og spurði af hverju í ósköpunum ekki væri búið að boða til fundar. Við erum búin að bíða hér í allan dag og ekkert gerist. Það var orðið við því. Það var fundur klukkan sex og við fórum bara nokkuð jákvæð inn á þann fund. Við héldum virkilega að við værum að fara að ná saman. Það er ótrúlega frakkt, það er ótrúlega bíræfið, að við verðum ásökuð um að setja málið sem á að fara á dagskrá á morgun í átakaferli ef við erum ekki tilbúin til að sætta okkur við að ekki hefur farið fram nein vinna til að ná sáttum um þinglok. Auðvitað viljum við ekki hafa þetta mál í (Forseti hringir.) átakaferli en til þess að koma í veg fyrir það vil ég að þessum fundi verði slitið nú þegar þannig að hægt sé að fara í (Forseti hringir.) samningaviðræður og ná einhverri skynsamlegri lausn á ástandinu á þessum vinnustað. Þetta er ekki í boði, forseti.