144. löggjafarþing — 125. fundur,  9. júní 2015.

um fundarstjórn.

[20:27]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Ég held að meira en oft áður, ég segi nú ekki nokkru sinni, þá skipti miklu máli hvernig forsetadæmið hér á þinginu bregst við. Lykilinn til lausnar á þessu tvöfalda vandamáli, milli stjórnar og stjórnarandstöðu annars vegar og milli stjórnarflokkanna hins vegar, hefur enginn nema forseti þingsins. Þetta fer í samningastöðu og í samningaerfiðleikum eins og þessum skipta teikn og tákn og merki miklu máli.

Hvað hefur gerst hér í dag? Eins og ég sé það þá hafa menn verið að ræða þingmál sem var tæknilega gallað, sem var í raun úrelt. Það gerist að varaformaður þeirrar nefndar sem um það vélar fellst á að taka málið aftur inn í nefnd við fögnuð stjórnarandstæðinga. Það næsta sem gerist er að tekjuskattsmál er rætt. Hópast stjórnarandstæðingar inn á það mál eins og í málþófsskyni? Nei. Það eru (Forseti hringir.) tveir núna á mælendaskrá og það lítur út fyrir að málið endi bara með venjulegum og hefðbundnum hætti. Hvað gerist þá? Mildar forseti þá sinn aga hér á þinginu? Nei, hann ætlar að halda áfram fundi hér til miðnættis í kvöld.