144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

orð formanns atvinnuveganefndar.

[13:25]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Formaður Sjálfstæðisflokksins hlýtur að útnefna hv. þm. Jón Gunnarsson sem starfsmann dagsins fyrir að velja nákvæmlega þetta augnablik, aðdraganda haftaumræðunnar, til að koma hingað og gera Alþingi að vettvangi fyrir enn eina klasasprengjuna. (Gripið fram í: Halda fjármálaráðherranum frá ræðustólnum.) Hv. þingmanni tókst á einni mínútu að hóta hæstv. umhverfisráðherra, hæstv. forseta og síðan öllum Húsvíkingum því að leggjast þver fyrir gegn þeim áformum um uppbyggingu á (Gripið fram í.) Bakka sem liggja fyrir. Það verður þó að segja hv. þingmanni til hróss að hann kom hér hið síðara sinni og gekk að vísu ekki svo langt að biðja Húsvíkinga afsökunar, eins og hann ætti auðvitað að gera, en komst að minnsta kosti aftur á hina fyrri skoðun. Það sem olli mér nokkurri sorg var það að hann dró líka til baka það sáttaboð sem hann hafði lagt fram um að reyna að skapa einhvern grundvöll fyrir frið í þingi. Það þótti mér mjög miður og verð að segja að ég hef ekki verið eins ósammála (Forseti hringir.) nokkru og því sem hv. þm. Svandís Svavarsdóttir sagði þegar hún sagði að hv. þingmaður hefði verið til friðs hér síðustu vikuna.