144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

orð formanns atvinnuveganefndar.

[13:29]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Erum við ekki sammála um að velgengnin, ef svo kaldhæðnislega má orða það, sé farin að stíga hv. þm. Jóni Gunnarssyni til höfuðs ef hann telur sig þess umkominn að kalla annarra manna tillögur af dagskrá þingsins, jafnvel stjórnartillögur? Það vald hefur hv. þingmaður ekki. (Gripið fram í.) Hann má hafa skoðanir á því en hann hefur ekki vald til að taka þingmál af dagskrá þingsins.

Það sem ríkið skuldbatt sig til að gera á Bakka var að fjárfesta í tilteknum innviðum, að hluta til með sveitarfélaginu, til langrar framtíðar, hafnarframkvæmdum og vegtengingum með göngum undir Húsavíkurhöfða, sem mun nýtast allri uppbyggingu þar um ókomin ár. Þetta er innviðafjárfesting sem ég hélt að ágæt samstaða ríkti um. Það er vissulega miður að hluti verksins reyndist talsvert vanáætlaður af hálfu Vegagerðarinnar. Að hluta til er hér um að ræða kostnaðaruppfærslu, 400 milljónir af þessu eru einfaldlega nýtt verðlag (Gripið fram í: 200.) og annað er svo það að menn hafa endurmetið kostnað við göng sem liggja grunnt, gera ráð fyrir meiri styrkingum o.s.frv. En ríkið er skuldbundið til þess og var búið að skuldbinda sig til að leggja til þessa (Forseti hringir.) innviði. Að ætla að fara að gera það síðan að einhverju máli hér að ríkið standi við gerða samninga og blanda því inn í önnur mál er alveg neðan við allar hellur. Ég lýsi ýtrustu skömm minni á framgöngu hv. þm. Jóns Gunnarssonar í þessu efni.