144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[14:58]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ítreka að það er gott að heyra að hæstv. fjármálaráðherra sé búinn að læra það eftir hagstjórnarlexíu síðustu tíu ára að það er ekki alltaf rétt að lækka skatta. Ég átti nefnilega miklar þrætur við sjálfstæðismenn um það upp úr 2003 þegar við gagnrýndum skattalækkanir, og þá var alltaf sagt: Ja, það er aldrei réttur tími til að lækka skatta. Það er nefnilega stundum ekki rétti tíminn til að lækka skatta og gott að heyra að hæstv. fjármálaráðherra er búinn að læra það.

Hitt finnst mér dálítið bratt að vera mættur hér með tillögur um skattalækkanir með ósamið við mikilvægar starfsstéttir í velferðarkerfi, með heilbrigðiskerfið á heljarþröm, eins og forstjóri Landspítalans er búinn að lýsa, og hafa ekki lyft fingri til nokkurs hlutar þegar kemur að byggingu hjúkrunarheimila á starfstíma þessarar ríkisstjórnar. Mér finnst eiginlega alveg ferlegt að byrja þá að fitja upp á skattalækkunum.