144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[16:05]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Nú stendur hv. þm. Karl Garðarsson upp, kannski er hann að koma hingað til að biðja um orðið. Ég vona það svo sannarlega. En, nei, svo er ekki. Hér yfirgefur þingsalinn, hv. þm. Karl Garðarsson, og ætlar ekki að verða við þeirri sanngjörnu kröfu að hann dragi sín alvarlegu ummæli til baka og biðjist afsökunar á þeim.

Ég vil eins og aðrir þingmenn hér á undan, fyrst staðan er þannig, krefjast þess að gert verði hlé á fundi, forsætisnefnd setjist yfir málið og sýni þannig í verki að þegar hv. þingmenn, og í þessu tilfelli formaður Samfylkingarinnar, eru ásakaðir um landráð og glæp líti forsætisnefnd það alvarlegum augum og taki með festu á málinu.