stöðugleikaskattur.
Virðulegur forseti. Fyrst bara smáábending, ég verð alltaf ringlaður þegar mér er hálfpartinn skipað að vera glaður. Gleði held ég komi ekki í boðhætti, maður getur ekki sagt öðrum að vera glaðir en maður getur vonast til þess.
Ég vil freista þess að gleðja hæstv. forsætisráðherra með því að benda honum á að það ríkir almenn ánægja með þessi frumvörp og þá vinnu sem hér er að baki. Ég vil útskýra í hverju sú ánægja mín felst. Mér finnst hér hafa verið komið til móts við þau sjónarmið mín og fleiri að hafa skynsamlega og ábyrga umgjörð um hið svokallaða svigrúm — gera sér grein fyrir því að þetta er ekki fjársjóður eða peningar í þeim skilningi að þeir geti bara farið beint út í hagkerfið, það þarf að hafa mjög ábyrga umgjörð um þetta út frá efnahagslegu tilliti — og hins vegar að fram hafi farið samtal við kröfuhafana.
Lítur hæstv. forsætisráðherra ekki svo á að það sé mjög mikilvægur þáttur í þessu ferli? Af hverju sagði hann við mig (Forseti hringir.) 22. apríl að ekkert slíkt samtal hefði farið fram þegar nú er augljóslega komið á daginn að það fór fram og er mjög mikilvægur liður í þessu öllu saman?