stöðugleikaskattur.
Virðulegur forseti. Ég fagna valfrjálsri gleði hv. þingmanns yfir þessum málum og raunar afstöðu stjórnarandstöðunnar til málanna yfir höfuð.
Hvað varðar fullyrðingu hv. þingmanns, um að ég hafi sagt að ekkert samtal hefði átt sér stað við kröfuhafana, þá er það ekki rétt, virðulegur forseti. Ég tók fram að engar samningaviðræður hefðu átt sér stað. Þær hafa svo sannarlega ekki átt sér stað enda er það grundvallaratriði, í því sem hér er verið að kynna, að þetta er ekki afrakstur samningaviðræðna. Menn voru látnir standa frammi fyrir ákveðinni niðurstöðu og það að málin skuli nú vera að leysast er einmitt tilkomið vegna þess að menn voru látnir standa frammi fyrir ákveðinni niðurstöðu.
Ég tók hins vegar fram, í sama fyrirspurnatíma og hv. þingmaður vísar til, að að sjálfsögðu hefði farið fram — ég man raunar ekki hvernig ég orðaði það, en að menn hefðu fengið upplýsingar um gang mála og þar með talið þessir aðilar.