144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[16:37]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég gat ekki betur heyrt á þeirri kynningu sem fram fór á mánudaginn um afnám hafta en að seðlabankastjóri kæmi því þar skilmerkilega á framfæri að þessi áætlun byggði á áætluninni frá 2011. Ég dreg því þá ályktun að hæstv. forsætisráðherra sé ósammála seðlabankastjóra um þá vinnu sem átt hefur sér stað og reikna þá með því að hann leiðrétti mig annars.

Hvað varðar skattalækkanir vil ég ítreka að sú hagfræði hefur ekki skilað árangri að það sé rétt efnahagsleg ráðstöfun að lækka skatta sem mest og leyfa þannig efri þrepum þjóðfélagsins að hagnast sem mest og þannig muni velsældin á einhvern hátt hríslast niður eins og lækir í gegnum samfélagið og gagnast hinum lægst launuðu. Það er mjög mikilvægt að við tökum mark á þeirri reynslu sem komin er á þá hagfræði sem keyrð var í gegn á níunda og tíunda áratugnum á Vesturlöndum og það er mjög mikilvægt að við fáum að vita um fyrirætlanir hæstv. ríkisstjórnar í þessum efnum. Ef okkur er alvara með því að við viljum tryggja hér lífskjör allra (Forseti hringir.) og að allir geti notið þess sem við eigum hér í þessu góða landi þá skiptir máli að (Forseti hringir.) gæðunum sé dreift af réttlæti. Það gerum við meðal annars í gegnum skattkerfið.