stöðugleikaskattur.
Herra forseti. Ég get trúað þingheimi fyrir því að hvenær sem er mun ég taka tilskipun frá hæstv. forsætisráðherra um það að verða glaður. Ég þarf þess þó ekki á þessum degi því að ég deili gleði hans. Satt að segja líður mér eins og fargi sé af mér létt. Ég var sammála mörgu í ræðu hæstv. forsætisráðherra sem var alveg prýðileg. Það er rétt hjá honum að verið er að ljúka núna sjö ára erfiðu ferli við að nudda niður krónueign slitabúanna þannig að hægt sé að ráðast í næsta skref, vegna þess að leiknum er ekki lokið. Nú er fram undan sjö ára ferli við að aflétta fjármagnshöftum, svo vísað sé í Lee Buchheit samningamann í Ríkisútvarpinu í gær.
Hæstv. forsætisráðherra er nú þekktur fyrir það að gleyma aldrei neinu. Gleymdi hann ekki einu í sinni upptalningu um forsendurnar og það sem leiddi að þessum stað? Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Telur hann að það hafi engu máli skipt þegar Alþingi (Forseti hringir.) tók gjaldeyriseignir slitabúanna 12. mars 2012 og færði þær (Forseti hringir.) undir íslenska efnahagslögsögu? Telur hann virkilega (Forseti hringir.) að það hafi ekki skipt máli í þessu?