stöðugleikaskattur.
Virðulegi forseti. Ég yrði að sjálfsögðu síðasti maðurinn til að gera athugasemdir við það að menn horfðu til Bjartrar framtíðar, en eftir sem áður bíða brýn úrlausnarefni í íslensku samfélagi. Ég geld varhuga við þeirri nálgun að tjónið verði bætt. Ég veit ekki alveg hvernig það lítur út, tjónið.
Ég held reyndar að það séu vísbendingar, eins og er ágætlega rakið í skýrslunni sem ég var hér með áðan eða í þessari úttekt, drögum að uppgjöri, að út frá því sem ríkissjóður hefur beint lagt út og út frá því sem líkur eru á að hann heimti til baka þá sé mögulegt að menn komi, út frá krónutölunni, út í hagnaði miðað við hrunið, það á enn eftir að selja eigur í eignasafni Seðlabankans og bankanna. (Forseti hringir.) Vissulega er tjónið líka annað, en ég veit ekki hvort þetta er endilega rétt nálgun. Ég mundi (Forseti hringir.) gjarnan vilja að við mundum draga lærdóm af þessu.