stöðugleikaskattur.
Virðulegi forseti. Ég vona svo sannarlega að þau tímamót hafi orðið hér í umræðunni að þessi landráðabrigsl svokölluðu — þó að menn noti kannski ekki beint það orð, en þessi brigsl um að menn séu að ganga erinda annarra hagsmuna en hagsmuna þjóðarinnar — heyri sögunni til og menn sjái að þetta gengur ekki upp. Það er svo augljóst, til dæmis í því dæmi sem við ræðum hér nú, að auðvitað hafa allir af fyllstu einlægni nálgast þetta viðfangsefni með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi, það er augljóst mál. Það þarf að fara í þessa umræðu af sanngirni. Mér fannst einmitt einstaklega gott að heyra ræðu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar áðan, sem var fjármálaráðherra á þessum erfiðu tímum. Hann rakti hvernig málið hefur þróast, hvernig málið hefur verið að taka á sig mynd. Í upphafi þessa máls vissu menn ekkert hvort þetta væri vandamál (Forseti hringir.)eða ekki. Þá gengur ekkert að aðrir stígi hér fram og væni menn um að ganga annarlegra erinda; (Forseti hringir.) menn áttuðu sig ekki á umfangi vandans á þeim tíma, þá voru upplýsingar ekki fyrir hendi.