144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[18:54]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að Willum Þór Þórsson er mjög málefnalegur þingmaður og einn af mínum uppáhaldsþingmönnum þannig að þessu var alls ekki beint til hans og auðvitað eru mjög margir framsóknarmenn mjög málefnalegir, en mér finnst leiðinlegt að sumir hafi dottið í þann pytt að reyna einhvern veginn að eigna sér þetta eða hvað maður á að kalla það að geta ekki horft á það að þetta er búin að vera sleitulaus, erfið vinna og barátta frá hruni sem er að skila okkur árangri. Það byrjaði ekkert vorið 2013.

Varðandi gengið þá vonar maður að Seðlabankinn hafi tryggt sér það stóran gjaldeyrisvaraforða að ef hann þyrfti að kaupa krónur þá gæti hann gert það. Ég held að þó að hluti af honum sé skuldsettur þá sé Seðlabankinn búinn að safna sér góðum forða. En þetta er það sem við búum við á Íslandi, það þarf ekki mikið að gerast varðandi gengið til að við sjáum það brjótast út í verðbólgu og það án þess að nokkur þensla sé í hagkerfinu. Það verður að koma í ljós.