144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[19:33]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það að auðvitað erum við að kljást við bæði sjónarmið og aðferðafræði, þ.e. ólíkir þingflokkar. Það er hið eðlilegasta og besta mál að við höfum misjafna sýn á það hvernig best er að fara með. Eins og ég lýsti hér áðan hugnast mér ekki fram komnar hugmyndir fjármálaráðherra um skattalækkanir. Á þessum tímapunkti held ég að þær séu ekki skynsamlegar. Við sáum það á hækkun stýrivaxta í morgun. Þar eru í rauninni tilkynntar stýrivaxtahækkanir aftur í ágúst. Það er gert ráð fyrir því. Það er aðferðafræðin og sjónarmiðin sem við erum hér að takast á um. Hvað svo? Það er svolítið þannig. Hvað svo þegar við verðum komin af stað í vegferðina sem felst í því að losa um höftin? Það er mikilvægt að fólk átti sig á því að við erum hér að hefja ferli í losun hafta í framkvæmd en ekki að afnema þau á morgun eða hinn eða þegar nefndin er búin að fjalla um málið og það hefur verið samþykkt í þinginu, þar með er ekki höftum létt. Þetta er flókið. Þetta er ekki sérstaklega skemmtilegt á að hlusta fyrir almenning en skiptir hins vegar alveg gríðarlega miklu máli. Það er þess vegna sem ég held að við þurfum að vanda okkur í umræðunni.

Ég tek undir það að mér hefur fundist umræðan hérna vera góð. Vissulega er mikið búið að fara yfir söguna og allir vilja Lilju kveðið hafa, eins og hv. þingmaður sagði. Mér finnst hins vegar aðalatriðið að við sjáum að þetta er langt og mikið ferli og allt það fólk sem að þessu hefur komið á auðvitað miklar þakkir skildar því að þetta hefur verið mikið og erfitt ferli, en það er ekki búið. Það er mikilvægt að við áttum okkur á því. Það er í rauninni (Forseti hringir.) ekki búið þó að þessi frumvörp verði samþykkt.