viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum og samningar um þinglok.
Virðulegur forseti. Það liggur fyrir að starfsáætlun þingsins er komin nokkuð að fótum fram. Við erum komin hér á aðra viku eftir að starfsáætlun ætti að vera lokið. Samningar hafa ekki tekist um þinglok. Þrír ráðherrar hafa tilkynnt sig undir liðnum um óundirbúnar fyrirspurnir og þegar við erum að undirbúa fyrirspurnatímann kemur í ljós að það eru bara tveir til svara. Við fáum tilkynningu um það með nokkurra mínútna fyrirvara að hæstv. utanríkisráðherra Gunnar Bragi Sveinsson verði ekki við fyrirspurnatímann. Ég held að þetta sé allt saman til marks um að ríkisstjórnin líti svo á að þingið sé ekki í fyrsta sæti og kannski undirstrikar þetta líka að það er kominn tími til þess að fara að semja hér og ljúka þingstörfum.