viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum og samningar um þinglok.
Forseti. Þetta er að sjálfsögðu vanvirða við þingið eins og hefur verið raunin hér í allan vetur og núna á þessu sumarþingi. Mér finnst ekki boðlegt að við séum með neitt annað á dagskrá þingsins nema það mál sem er á dagskrá á eftir. Mér finnst ekki boðlegt að settir séu á nefndafundir og þeim er úthlutaður allt of skammur tími. Við höfum ekki fengið neinar sérstakar umræður í langan tíma. Hér eru mjög alvarleg verkföll. Ég mundi mjög gjarnan vilja ræða við heilbrigðisráðherra um það ítarlega. Það er neyðarástand á leigumarkaði og ég mundi gjarnan vilja eiga ítarlega umræður um það hvernig á að bregðast við því, vegna þess að ekki verður brugðist við því með þeim frumvörpum sem hér hafa verið lögð fram. Við náum ekki að vera með eðlilegt þinghald á sama tíma og við erum í þinghúsinu. Mér finnst það ekki eðlilegt, forseti, og ég óska eftir því að öllu öðru verði rutt af (Forseti hringir.) dagskrá, það er ekki einu sinni rammi utan um vinnuna okkar hérna, á meðan þessi umræða er, og síðan höfum við bara venjulegt þinghald þar á eftir.