144. löggjafarþing — 127. fundur,  11. júní 2015.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum og samningar um þinglok.

[10:31]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegur forseti. Það sem við erum að kvarta yfir er þessi ófyrirsjáanleiki. Það er svo erfitt að vinna þegar maður veit ekki hvort maður á að vera að setja sig almennilega inn í eitthvert frumvarp sem við vitum ekki einu sinni hvort verður tekið á dagskrá. Það stendur ekkert á okkur að vinna hér í sumar með lögbundnu sumarleyfi en það er óneitanlega svolítið krúttilegt þegar þingmenn meiri hlutans lýsa því ítrekað yfir að þeir séu nú kjörnir fulltrúar og geti unnið hér í sumar en svo eru þeir farnir, margir hverjir. Ráðherrarnir virðast ekki einu sinni geta verið hérna. Ég tek undir það sem hefur verið sagt, ég mundi gjarnan vilja fá mína sérstöku umræðu á dagskrá og tvær skriflegar fyrirspurnir til munnlegs svars sem mér finnst mjög mikilvægar. Ég kalla eftir því að þetta verði sett á dagskrá, þá fáum við kannski ráðherrana hingað í salinn.