breytingar á stjórnarskrá.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta spurningu hvað varðar væntingar mínar til þjóðaratkvæðagreiðslu um afrakstur eða hluta af afrakstri í vinnu þessarar nefndar, þá held ég að ég hafi nefnt það nokkrum sinnum opinberlega að ég teldi heppilegt ef menn næðu það langt í vinnunni og næðu það vel saman að hægt yrði að greiða atkvæði um þetta samhliða forsetakosningum, svoleiðis að ég hef enn væntingar til þess að það eigi að geta gengið eftir. Jafnframt hef ég gert ráð fyrir að nefndin gæti unnið áfram að frekari breytingum eða tillögum um breytingar.
Varðandi síðustu spurninguna um varanleika þessa sérstaka ákvæðis var það náttúrlega sett þarna inn til þess að menn gætu lokið þeirri vinnu sem nú klárast hugsanlega fyrir forsetakosningar. Það er því ekki sjálfgefið að ástæða verði til þess að framlengja það ákvæði ef það er búið að gegna sínu hlutverki.