144. löggjafarþing — 127. fundur,  11. júní 2015.

sala banka til erlendra aðila.

[10:47]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Um áratugaskeið, í a.m.k. tuttugu, þrjátíu ár, hefur verið leitast við með hléum að fá erlenda aðila til þess að koma inn á íslenskan bankamarkað, fjármálamarkað. Það hefði ýmsa kosti í för með sér ef sá aðili ætlaði að standa í bankarekstri í samkeppni við aðra banka. Hins vegar er ég sammála hv. þm. Frosta Sigurjónssyni um að það er ekki sama um hvaða aðila væri að ræða. Það væri til dæmis ekki gott að íslensk bankarnir kæmust í eigu einhverra fjárfestingarsjóða sem ætluðu sér ekkert að standa í rekstri banka, heldur eingöngu að reyna að ná sem mestu héðan út á sem skemmstum tíma. Það væri óásættanlegt fyrirkomulag.