vistvænar bifreiðar og fordæmi ríkisins.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði að beina fyrirspurn til hæstv. utanríkisráðherra en ég sé að hún getur allt eins og jafnvel betur átt við hæstv. forsætisráðherra.
Ég velti fyrir mér kaupum á vistvænum bílum á vegum ríkisins og var með skriflega fyrirspurn til umhverfisráðherra um vistvæn ökutæki. Það kemur í ljós að á einhverjum tímapunkti voru sett metnaðarfull áform, árið 2007 var markmiðið að í lok 2008 yrðu 10% bifreiða í eigu ríkisins knúin vistvænum orkugjöfum, 20% í lok ársins 2010 og 35% í lok árs 2012. Þetta hefur náttúrlega engan veginn gengið eftir.
Í svarinu við fyrirspurn minni segir meðal annars að vistvænar bifreiðar séu enn sem komið er dýrari en hefðbundnar bensín- og dísilbifreiðar, en það er auðvitað þannig að ef við ætlum að ná einhverjum árangri í loftslagsmálum þá getum við ekki bara horft á kostnaðinn og mér finnst að ráðherrar eigi að ganga á undan með góðu fordæmi. Þegar kemur að þessum málaflokki verða allir að líta í eigin barm. Ef stjórnvöld eru með einhverja stefnu þá verða þau að ganga á undan og, eins og menn segja, virðulegi forseti, „put your money where your mouth is“. Þess vegna er merkilegt að sjá að ráðherrabifreiðar eru t.d. Land Rover-jeppar og Land Crusier-jeppar og þar fram eftir götunum. Einhvers staðar sá ég að hæstv. forsætisráðherra hefði hug á að kaupa sér nýja bifreið og þá var nú tekið eitthvert dæmi af þeirri bifreið, sem gætu verið sögusagnir, en ég treysti því að hæstv. forsætisráðherra og ráðuneyti hans kaupi rafbíl þegar farið verður í kaup á nýjum bifreiðum. Ég hef áhuga á að heyra hver afstaða hæstv. forsætisráðherra er til þessa málaflokks.