stöðugleikaskattur.
Þau komu mér á óvart, herra forseti. Ég er í mörgum greinum andstæðrar skoðunar við hæstv. fjármálaráðherra, en ég hef gefið honum plús fyrir það að hann hefur gengið mjög varlega um dyr í fjármálum ríkisins. Mér hefur fundist hann standa sig vel, sérstaklega í þessu máli, og hann á hrós skilið fyrir að hafa dregið aðra sleða sem hann starfar með frá vitleysunni sem tengdist gjaldþrotaleiðinni. Það hefði bara sett íslenskt samfélag í mikinn háska. Þess vegna tel ég að það sé óvarlegt. Ef hv. þingmaður vill ekki dansa með mér í kringum merkingarfræði ætla ég ekki að fara frekar út í þetta. Ég vek athygli á því að þessi túlkun skiptir máli. Til dæmis hefur fyrrverandi formaður VG verið ásakaður um að hafa staðið mjög ranglega að því með hvaða hætti kröfuhafar fengu á sínum tíma bankana í sínar hendur. Jæja, það blasir við núna að það var hárrétt ákvörðun og að allt það sem lagt var í það mál skilar sér nánast margfalt til baka. Það er ekki hægt að lesa annað út úr því sem heitir (Forseti hringir.) erindi á heimasíðu fjármálaráðuneytisins en að það sé staðfesting á því að það sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon gerði sem fjármálaráðherra var kórrétt. Þess vegna er þetta ekki túlkunarstríð, þetta eru kannski átök um að leiða sannleikann fram. Ég veit að hæstv. forseti er áhugamaður um það.