stöðugleikaskattur.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég held að hér endurspeglist í raun sá stórkostlegi munur á stjórnmálastefnum sem er á milli Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Sjálfstæðisflokksins. Auðvitað eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar til þess fallnar að fletja út skattkerfið, herra forseti. Auðvitað er það að fækka skattþrepum ekkert annað en áfangi í því að fletja út skattkerfið þó að hæstv. ráðherra taki hér fram að Sjálfstæðisflokkurinn styðji persónuafslátt, þó það nú væri, segi ég nú bara, herra forseti. Og hvað er afnám auðlegðarskatts annað en annar áfangi í því að fletja út skattkerfið? Hvað er hækkun matarskatts annað en auknar álögur á þá sem eyða mestum hluta tekna sinna í matvæli? Það eru lágtekjuhóparnir í landinu. Allt miðast þetta að því, að mínu viti og ég veit að við hæstv. ráðherra verðum örugglega aldrei sammála um það, að auka ójöfnuð í samfélaginu.
Það kann kannski ekkert að koma á óvart að við séum ósammála um það, en ég hvet hæstv. ráðherra, sem kemur hér upp og lofar Margréti Thatcher og hennar stjórnarstefnu hér í pontu Alþingis, að kynna sér niðurstöðurnar af þeirri stjórnarstefnu. Það má vel vera að hæstv. ráðherra sé aðdáandi hennar en um að gera að skoða niðurstöður eins fremsta háskóla heimsins, Cambridge, um niðurstöður stjórnarstefnunnar.
Þó að maður sé hrifinn af einhverjum, þó að maður sé hrifinn af einhverri persónu, verður maður stundum að endurskoða gildismat lífsins þegar ný gögn koma fram. Þau gögn sem þessi ágæti háskóli leggur fram sýna beinlínis að stjórnarstefna hennar skilaði auknum ójöfnuði, auknu atvinnuleysi og minni vexti — sem er það sem ég hef heyrt Sjálfstæðisflokkinn tala um kosningar eftir kosningar. Stjórnarstefna Thatcher, sem hæstv. formaður Sjálfstæðisflokksins lofar hér svo mjög, skilaði beinlínis minni vexti á meðan við sjáum þveröfugar niðurstöður í þeim samfélögum sem hafa fremur kennt sig við jafnaðarstefnu í fortíðinni.