stöðugleikaskattur.
Herra forseti. Þetta eru mjög athyglisverðar pælingar hjá hv. þingmanni. Ég hef skilið þetta þannig að það sem kemur út úr þessu til Íslands og skapar svigrúm, þ.e. vegna stöðugleikaskuldbindinganna eða í gegnum stöðugleikaskattinn, fari inn í Seðlabankann. Samkvæmt 34. gr. laga um Seðlabankann, mig minnir að það sé sú grein, rennur sá partur af hagnaði Seðlabankans sem ekki fer til þess beinlínis að auka eigið fé hans samkvæmt því sem þarft er til ríkisins og ríkið hefur heimild til að ráðstafa því. Það sem skiptir þó öllu máli í þessu er að þessir gerningar eru lagðir fram hér í formi frumvarpa á þeim forsendum að þessu eigi einungis að verja í einum tilgangi, þeim að lækka skuldir ríkisins. Það eina sem hægt er að kalla svigrúm sem skapast í fjárlögum og hægt er að segja að löggjafinn geti tekið ákvörðun um ráðstöfun á eru lægri vaxtagjöld sem af hljótast. Það er það sem ég var að gagnrýna fyrr í dag, mér fannst hæstv. fjármálaráðherra vera fullfljótur á sér að fara að tala um að nýta það svigrúm til skattalækkana. Mér fannst það alveg út í hött af ýmsum ástæðum vegna þess að ég er þeirrar skoðunar að við eigum að nota það til allt annarra hluta. Það er þó önnur saga.
Það skiptir öllu máli hvert álit efnahags- og viðskiptanefndar verður þegar málið kemur aftur inn í þing. Ég geri ráð fyrir og hef gengið út frá því að ein af forsendunum sem þar koma fram, vonandi í sameinuðu áliti eða að minnsta kosti á öllum álitum, sé akkúrat það að þessa peninga megi ekki nota til þensluhvetjandi aðgerða heldur verði að fara til þess að borga skuldir ríkisins. Það verður meira að segja nokkrum tæknilegum vandkvæðum bundið að finna réttar leiðir til þess.