stöðugleikaskattur.
Virðulegur forseti. Gaman að sjá þessa frábæru mætingu hér í þingsal. Það er ljóst að hróður mælsku minnar hefur borist víða um þingið.
Ég hef mest af minni þekkingu á gjaldeyrishöftunum og þessum málaflokki upp úr skýrslu eða bók sem kom nýlega út, Drög að uppgjöri eftir þá doktora Ásgeir Jónsson og Hersir Sigurgeirsson, sem er prýðissamantekt, ekki bara á gjaldeyrishöftunum heldur er þetta mjög gott hagfræðiuppflettirit. En áður en ég kem að því langar mig að segja frá því að menn tala um það núna að ekki hafi verið svo vond tíð eða jafn kalt í maímánuði á Íslandi síðan árið 1979. Ég var að reyna að rifja það upp með sjálfum mér hvar ég hefði verið 1979 og man það þó, þótt ég sé nú ekki gamall maður, alla vega ekki í samanburði við marga sem vinna á þessum vinnustað, nefni engin nöfn í því samhengi, að ég var í sveit í Húnavatnssýslu sumarið 1979. Ég minnist þess ekki að það hafi verið eitthvað sérstaklega kalt á þeim tíma. En ég man eftir því að menn voru mikið að rífast um virkjun, Blönduvirkjun, og menn gengu í bolum merktum Blönduvirkjun. Það var greinilega mikil barátta í gangi, það ég skynjaði nú þrátt fyrir ungan aldur. En ég man sem sagt ekki eftir hafta- og skömmtunartímabilinu eða því skeiði í sögu landsins.
Ég er fæddur 1971, akkúrat árið sem viðreisn varð frá að hverfa eftir 12 ára valdasetu, þannig að það var merkilegt að upplifa það í lok árs 2008, í miðju hruni, ef svo má segja, að maður þyrfti að fara með flugmiðana sína í banka og taka út gjaldeyri til þess að fara með til útlanda. Það kom mér mjög spánskt fyrir sjónir. Það var eins og vakna upp við vondan draum að vera skyndilega kominn í þá stöðu. Af því að ég hef í seinni tíð kynnt mér þessi tímabil og skeið í stjórnmálasögu landsins minnti það mig á það sem við sem þjóð höfum gengið í gegnum. Núna sér fyrir endann á þessu skeiði í sögu þjóðarinnar en þar með er ekki endilega sagt að við séum komin út úr því ölduróti sem einkennir íslenskt efnahagslíf og hefur einkennt það síðustu áratugi og í rauninni alla lýðveldissögu þjóðarinnar.
Ég minnist þess sérstaklega að eftir síðustu kosningar þegar hagtölur bentu til þess að allt væri á uppleið, þetta færi nú að líta betur út, hitti ég hagfræðimenntaðan kunninga minn á förnum vegi, það eru um tvö ár síðan. Hann sagði við mig: Já, ætli við séum ekki í upphafinu á svona íslenskri bólu sem tekur okkur svona þrjú, fjögur ár að sprengja og þá fáum við séríslenskt, lokað efnahagshrun vegna þess að við erum í höftum, en það verður ekki jafn mikið og 2008.
Þegar maður horfir í kringum sig á yfirlýsingar sem fram eru komnar; keppni í loforðum um skattalækkanir og fjölda byggingakrana, veltir maður fyrir sér hvort þetta hafi ekki einmitt verið orð að sönnu og hvort sagan muni ekki endurtaka sig og það sé eiginlega óhjákvæmilegt að við séum aftur og aftur að endurtaka þessa sögu.
Þau mál sem hér eru til umfjöllunar saman eru góð mál. Ég er mjög ánægður með að samningaleiðin varð ofan á þegar kemur að losun hafta. Það er ánægjulegt vegna þess að til allt of langs tíma leit út fyrir að hæstv. forsætisráðherra væri búinn að festa sig við hina svokölluðu gjaldþrotaleið. Menn geta svo sem reynt eftir fremsta megni að þræta fyrir það eða halda því fram að það hafi verið sérstök tegund af stjórnvisku að halda svo á málum að það væri möguleg leið, verður ekki um það deilt að þetta tók tíma. Skrifaður var leiðari um það í Fréttablaðinu í vikunni þar sem þeirri spurningu var velt upp sem ég held að sé mikilvæg: Hvað kostaði þessi töf? Af hverju var þessi samningaleið ekki farin miklu fyrr?
Mig langar til þess að grípa niður í skýrslu þeirra Ásgeirs Jónssonar og Hersis Sigurgeirssonar þar sem er fjallað um haftaafnámsvinnu stjórnvalda, með leyfi forseta:
„Ráðgjafar stjórnvalda virðast í upphafi hafa álitið gjaldþrotaskipti vænlegustu leiðina til þess að ljúka slitameðferð föllnu bankanna. Sú skoðun stafaði af þeim skilningi að við gjaldþrotaskipti þyrfti að greiða allar kröfur út í krónum. Þannig að ef slitabúin væru sett í þrot myndu þau vera knúin til þess að afhenda Seðlabankanum gjaldeyriseignir sínar á álandsgengi. Í almennri umræðu var þetta kallað gjaldþrotaleiðin. Sú leið var hins vegar dæmd úr leik með dómi Hæstaréttar hinn 10. nóvember 2014 í máli Kaupþings hf. gegn Aresbank S.A. Þar kom skýrt fram að þó að allar kröfur íslenskra þrotabúa væru reiknaðar í lögeyri landsins stæðu engar skyldur til þess að greiða þessar sömu kröfur út í krónum. Með því að ganga inn þessa blindgötu virðist haftaafnámsvinna stjórnvalda hafa tafist um rúmlega ár.“
Þetta er áleitin spurning sem þarf að svara.
Það er alveg ljóst að það varð ákveðin biðstaða þegar ný stjórn kom hér til valda árið 2013. Menn hafa mikið talað um hvort hér hafi verið byggt á áætlun fyrri ríkisstjórnar eða ekki. Mér finnst það vera augljóst, að minnsta kosti var niðurstaðan í takt við það sem stefnt var að þar, en það er kannski óþarfi að eyða of miklum tíma í að velta því fyrir sér. Það er alveg hægt að segja það ríkisstjórninni til varnar að það er eðlilegt að við taki einhver biðtími þar sem ný stjórn setur sig inn í málin. En ég held að haustið 2013, þegar menn fóru af stað í þá vinnu sem hér er rædd hafi menn hengt sig of mikið í gjaldþrotaleiðina og fyrstu mánuðirnir fóru í að skoða og kanna möguleika í þeim efnum. Síðan féll dómurinn sem vitnað er til í skýrslunni, eins og ég sagði áðan. Svo kom Lee Buchheit inn og staðan fór líklega að breytast í desember síðastliðnum.
Mér fannst það athyglisvert þegar þessi mál voru kynnt til sögunnar í Hörpu núna í byrjun vikunnar hversu mikil áhersla var lögð á skattinn í kynningunni, skattinn sem var til þrautavara og átti samkvæmt þeim sem kynntu þetta fyrir hönd ríkisstjórnarinnar mögulega að skila inn um 850 milljörðum. Það var mikið lagt upp úr þeirri tölu, 850 milljörðum, og mikið lagt upp úr 1.200 milljörðum og svolítið skautað fram hjá því að miðað við ákvæði í lögunum geta menn fært 20% af eignum undan þannig að ef skatturinn hefði komið til, sem verður ekki, hefði upphæðin aldrei orðið 850 milljarðar heldur mjög líklega 650 milljarðar, þannig að það munar þarna um 200 milljörðum. Ef lauslega er áætlað út frá yfirlýsingum frá búunum má búast við að þetta skili um 400 milljörðum.
Það sem ég er að leiða að hér eru vangaveltur um það hvers vegna hlutirnir eru aldrei sagðir nákvæmlega eins og þeir eru. Af hverju er lögð svona mikil áhersla á það af hálfu stjórnarflokkanna að teikna í sífellu upp einhverjar myndir sem standast ekki skoðun ef betur er að gáð, eins og til dæmis það sem ég nefndi um kynninguna í Hörpu nú á dögunum? Það sama er upp á teningnum þegar kemur að umræðum hér í þinginu.
Ég byrjaði á því nú í byrjun vikunnar þegar þessi mál voru kynnt til sögunnar að rifja aðeins upp þau orð sem hér hafa verið látin falla um samtal við kröfuhafana. Hæstv. forsætisráðherra hefur ítrekað verið spurður að því hvort ekki ætti að ræða við þá og þá ítrekað sagt að ekki stæði til að semja og svo framvegis. Maður þarf að setja sig í krossgátustellingar þegar maður les í gegnum ræður hæstv. forsætisráðherra. Maður þarf beinlínis að setja sig í ákveðna stellingu eins og maður sé að leysa orðagátu og lesa nákvæmlega hvert orð, vegna þess að það er eins farið með hæstv. forsætisráðherra og fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, sem þótti hafa þann stíl að 50% samtölum hans við fjölmiðla voru um það sem hann sagði ekki. „Nei, þetta var ekki það sem ég sagði. Ef þú skoðar nákvæmlega orðalag mitt þá var það þetta hér sem ég átti við.“ Hver einasta setning og hver einasta yfirlýsing er orðuð þannig að hægt er að túlka hana með einhverjum tilteknum hætti eftir á. Það er hvimleiður siður og það er því miður stíll sem einkennir alla ríkisstjórnina. Umræðan í landinu er sífellt um einhvern misskilning, einhvern rangan skilning sem menn lögðu í orð hæstv. forsætisráðherra eða ætlanir ríkisstjórnarinnar, einhverjar skilgreiningar á orðinu „strax“ o.s.frv.
Ekkert í þessu máli kallar á að menn séu jafn loðnir í tilsvörum og jafn óljósir í ætlunum sínum og raun ber vitni. En niðurstaðan, samningaleiðin, er góð niðurstaða. Ég hrósa ríkisstjórninni af einlægni fyrir hana. Ég er ánægður með þá lendingu. Hún er ábyrg, en hún setur auðvitað ákveðnar skyldur á herðar þeim sem fara með stjórn efnahagsmála í landinu. Hún gerir þá kröfu til ríkisstjórnarinnar að farið sé með það sem inn kemur af þessum fjármunum af mikilli ábyrgð. Það er mjög jákvætt að það sé skrifað inn hér að nýta eigi þessa fjármuni eingöngu til þess að greiða niður skuldir ríkissjóðs.
En það er annað sem mér finnst vanta, það er annað sem við þurfum að ræða í þessu samhengi, það er gjaldmiðill þjóðarinnar. Það hlýtur að vera mikið umhugsunarefni fyrir þjóðfélag þegar kröfuhafar gefa eftir jafn mikla fjármuni og hér um ræðir. Þeir eru í rauninni tilbúnir til þess að afsala sér eignum sínum til þess að geta sagt skilið við og lokið sínum samskiptum við þetta efnahagssvæði, sem er hið íslenska efnahagssvæði. Það er nokkuð sem við þurfum að velta fyrir okkur. Það eru auðvitað spurningar sem er ósvarað í þessu efni, til dæmis varðandi gjaldmiðillinn, verðbólguna, vextina og lífskjörin sem þessi atriði skapa þjóðinni í landinu.
Ætlum við núna þegar við höfum komist út úr þessari kreppu, þessari spennitreyju fjármagnshafta, í alvörunni að láta eins og ekkert hafi í skorist og halda áfram alveg fullviss um að þessi staða muni aldrei koma upp aftur? Staðreyndin er sú að smæð gjaldmiðilsins veldur gríðarlegum sveiflum sem veldur því að það er áhættusamt að lána í honum, sem veldur því aftur að hér eru vextir hærri en annars staðar. Það var mjög athyglisverð samantekt í Ríkisútvarpinu á dögunum þar sem lánakjör almennings til húsnæðiskaupa voru borin saman. Það er átakanlegt að sjá hversu miklu slakari kjörin eru hér á landi. Það er í rauninni algjörlega óboðlegt. Það er líka mikið áhyggjuefni að fólk flýi landið þegar efnahagslegur uppgangur er, þegar störf eru að verða til, þegar ferðaþjónustan skilar hér um 303 milljörðum, eins og á síðasta ári, að þrátt fyrir það flytji fjölskyldur héðan vegna þess að þær sætta sig ekki lengur við þau skilyrði sem þeim eru búin.
Þegar menn eru með svo háa vexti sem raun ber vitni hefur það haft þau áhrif á íslenskan húsnæðismarkað að menn horfa yfirleitt aldrei til þess að greiða upp lánin sín. Menn kaupa yfirleitt húsnæði byggt á greiðslugetu, þ.e. hvort greiðslubyrðin á hverju ári sé viðráðanleg, og svo hugsa menn ekki til enda hvernig það dæmi mun líta út. Það hefur leitt til þess að við eignumst ekki húsnæðið okkar. Það hefur leitt til þess að flest fólk lítur á íbúðarkaupin sem einhverja útfærslu eða tilraun til sparnaðar. Þetta er að hluta til lífeyrissparnaður sumra. Það er enginn raunverulegur leigumarkaður til hliðar við húsnæðismarkaðinn. Ástandið er í rauninni mjög óheilbrigt. Það er ekki endilega hægt að ætlast til þess að því sé svarað hér, þetta er í rauninni ekki mál sem snýst um að svara þeirri spurningu, en þetta hlýtur hins vegar að vera nokkuð sem almenningur á Íslandi þarf að velta fyrir sér.
Það er óábyrgt að svara kjósendum ekki þegar kemur að þeirri spurningu: Hvert er stefnt? Hvað gerist núna? Hvernig ætla menn að koma í veg fyrir að við siglum núna ótrauð inn í annað hrun? Það er með ólíkindum hversu oft okkur hefur tekist að fara að skapa bólu eins og varð til hér í aðdraganda hrunsins 2008, sem springur svo á endanum og við, allur almenningur á Íslandi, ríkissjóður, okkar velferðarkerfi, sitjum eftir með sárt ennið.
Ég vil gera það að lokaorðum mínum í dag. Þetta er ágætt, en við þurfum að hugsa til framtíðar og við þurfum að hugsa þannig að við séum að leysa þessi mál og séum með efnahagslíf sem er heilbrigt og byggir á framtíðarhugsun og er sjálfbært, að við séum ekki alltaf að búa til nýjar bólur, sprengja þær og leysa síðan næstu kreppu með einum eða öðrum hætti.