144. löggjafarþing — 127. fundur,  11. júní 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[12:42]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni og ég er í þeim hópi, eins og hv. þingmaður, sem telur að við þurfum að taka upp stærri gjaldmiðil og að við eigum að ganga í myntbandalag og vera aðili að sterkara umhverfi. En ég ber líka virðingu fyrir öðrum sjónarmiðum, m.a. því sjónarmiði að við getum einhvern veginn haldið áfram að reka íslensku krónuna. En þá þurfa menn að sýna fram á hvernig á að gera það. Það er ekki nóg að segja: Við ætlum að loka hér Evrópuleiðinni. Menn þurfa þá að leggja fram eitthvert annað plan, einhvern annan valkost. Það er það sem ég sakna hér. Ég saknaði þess líka þegar menn lokuðu Evrópuleiðinni í vetur. Ég sakna þess einnig núna þegar menn eru komnir með sæmilegasta plástur á hið sjúka sár sem þrotabúin eru á efnahagskerfi okkar, eins og hv. þingmaður nefnir réttilega. Það dugar okkur ekki að menn segi bara: Heyrðu, frábært, óskum hver öðrum til hamingju með þetta, en segjum svo ekki hvernig við ætlum að lifa af með krónuna til lengri tíma, vegna þess að hún er rót þessa vanda sem verið er að leysa hér. Og ætla menn þá bara að halda áfram og láta málið fara í hring og við stöndum í sömu sporum eftir einhverja áratugi þegar við höfum gleymt okkur aftur og sofnað á verðinum? Það er það sem ég hef áhyggjur af. Mér finnst þessi ríkisstjórn vera býsna blind á hvernig þessir hlutir hanga allir saman þegar hún segir á einum stað að hún ætli að afnema verðtryggingu og síðan annars staðar að hún ætli að hafa íslensku krónuna áfram. Það fer ekki saman í mínum huga. Ég held að það skipti máli að við reynum hér, þingmenn, að krefja ríkisstjórnina svara, eða að minnsta kosti til samstarfs við okkur um með hvaða hætti við ætlum að vinna að því að ná lendingu í peningastefnunni til lengri tíma.