144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

lagasetning á kjaradeilur.

[13:36]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Ég tek undir beiðnir um skýringu á því af hverju hæstv. atvinnuvegaráðherra flytur þetta mál. Ég vil líka benda á það sem ég geri alvarlegar athugasemdir við að hér er boðað til fundar um svona alvarlegt mál án nokkurs samráðs við þingflokksformenn, án nokkurs samráðs við þingið. Mætti maður þá spyrja: Hver fer með yfirstjórn þingsins? Er það forseti Alþingis eða eru það ráðherrar? Mér finnst þetta mjög alvarlegt af því að við fengum engan tíma til að kynna þetta þingflokkum okkar og það var ekki nema út af því að við pönkuðumst viðstöðulaust í forseta um að fá tíma til að ræða saman málin og það hefur komið í ljós með því að fara hratt yfir þetta frumvarp að mjög mörgu er ábótavant í því fyrir utan eðli þess sem er gjörsamlega siðlaust.