144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

lagasetning á kjaradeilur.

[13:43]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Staðan er mjög alvarleg, það er alveg ljóst. Hér er þinghald í miklu uppnámi, búið að vera í langan tíma, engin starfsáætlun og ekkert liggur fyrir. Eins og hér hefur verið rakið er búið að biðja um þetta samtal mjög lengi. Samninganefnd ríkisins hefur ekki haft umboð til að gera nokkurn skapaðan hlut. Á meðan boðar hæstv. fjármálaráðherra — hvað? Lækkun á sköttum, það er það sem hann vill helst gera í staðinn fyrir að semja við fólkið sitt eins og honum ber að gera og samninganefnd hans. Það var hægt að bjóða upp á það að byggja spítala þegar samið var við lækna. Það var undirritað. Núna þegar kvennastéttirnar eiga í hlut þá er ekki hægt að semja. (Gripið fram í.) Og það kemur fram í ríkisfjármálaáætlun hæstv. fjármálaráðherra. 2% umfram. Nei, takk, það er ekki annað í boði. Ég bið hann um að lesa ríkisfjármálaáætlun sína þar sem kemur fram að það er ekki í boði nein hækkun öðruvísi en að skera niður væntanlega í velferðarkerfinu eða boða skattahækkanir. Hvort ætlar hann að gera?