lagasetning á kjaradeilur.
Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur sent til samninga við BHM og hjúkrunarfræðinga samninganefnd sem ekki hefur umboð. Það liggur algjörlega ljóst fyrir að ríkisstjórnin vildi ekki samninga. Hún vildi koma málinu í þetta horf. Núna kemur ríkisstjórnin og ætlar að knýja fram lög á 17 aðildarfélög. Ég spyr hæstv. forseta: Á að ræða slíkt frumvarp án þess að hæstv. forsætisráðherra sé viðstaddur? Hér er nánast allur þingheimur kominn — ég sé það að hæstv. forsætisráðherra er kominn. Þá kemur hann væntanlega hér og gerir grein fyrir því hvernig í ósköpunum stendur á því að hann hefur ekki kjark til þess að flytja þetta frumvarp. Ég hef ekkert á móti hæstv. landbúnaðarráðherra, en þessi deila snýst samkvæmt greinargerð af hálfu ríkisstjórnarinnar um heilbrigðismál. Hvers vegna er þá ekki hæstv. heilbrigðisráðherra látinn flytja þetta? Landbúnaðarráðherra, þýðir það kannski að menn setji kjúklinga ofar (Forseti hringir.) sjúklingum í forgangsröðina?