144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

Afbrigði um dagskrármál.

[14:30]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Svo vikum skiptir hefur minni hlutinn hér óskað eftir því að kjaramál séu rædd í þingsal. Þingmenn minni hlutans hafa lagt fram alls konar hugmyndir um hvað væru skynsamleg innlegg í mjög erfiðar kjaradeilur á vinnumarkaði af hálfu ríkisins. Sagt hefur verið að kjaradeilur verði ekki leystar í þingsal og það sé ekki stjórnvalda að skipta sér af kjaradeilum og þar fram eftir götunum. Það er af og frá að þingmenn Bjartrar framtíðar geti stutt það að þetta mál fari á dagskrá. Við greiðum því ekki atkvæði, sérstaklega ekki í ljósi þessarar forsögu.

Ég hygg að núna þegar málið fer, þrátt fyrir það, í meðferð þingsins muni sú mynd dragast upp að ríkisvaldið hefur verið að draga lappirnar í þessum kjaraviðræðum og sá stjórnunarstíll er algjörlega kominn út í skurð. Þessi ríkisstjórn er komin út í skurð með stjórnunarstíl sinn. Ég held að við getum dregið þá ályktun eftir þessa yfirferð þingsins að líklega væri skynsamlegra að setja lög á þessa ríkisstjórn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)