kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Virðulegi forseti. Eins og fram kemur ágætlega í IV. kafla athugasemda frumvarpsins, þar sem farið er yfir samningsbundin réttindi og hvernig þessi lög standast þau lög sem eru í landinu, er það útskýrt ágætlega að í ákveðnum tilvikum er það neyðarréttur að þegar almannaheill er í húfi sé hægt að grípa til þessara aðgerða. Í stað þess að koma hér og stöðva verkfallið er lögð til frestun. Það er enn tækifæri til samninga og þó að gerðardómur sé settur á er enn tækifæri í sex vikur fyrir samningsaðila til að finna lausnir á einstökum álitaefnum og málinu í heild. Gerðardómur getur gert þá niðurstöðu að sinni eða tekið tillit til hennar miðað við þær forsendur sem gerðardómur mun starfa eftir. Ég tel þetta miklu mildari (Forseti hringir.) leið og að meðalhófs sé gætt til að tryggja og eiga möguleika fyrir samningsaðila að finna lausnir á sínum málum.