144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

798. mál
[16:06]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ástæða þess að við höfum áhyggjur af því er að við teljum eðlilegra að farin hefði verið sú leið, þótt það séu fleiri en eitt stéttarfélag, að stéttarfélögunum hefði verið falið að tilnefna einn fulltrúa sameiginlega og að ríkið hefði að sama skapi skipað einn fulltrúa inn í slíkan gerðardóm. Eftir að hafa ráðfært okkur, á þeim stutta sem gafst til skoðunar málsins hér í morgun, við sérfræðinga á sviði vinnuréttar teljum við að það væri eðlilegri leið að fara til að hægt sé hægt tala um gerðardóm. Ég veit það og þekki það sem hv. þingmaður nefnir, að þetta hefur hins vegar verið gert á þann hátt. Við höfum líka hina leiðina og það var raunin, eins og ég fór yfir í máli mínu, í lögum sem sett voru á félag atvinnuflugmanna. Við teljum þá leið eðlilegri til að tryggja aðkomu þeirra sem eiga í deilunum að slíkum dómi. Það er okkar mat.