144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

798. mál
[16:55]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er út af fyrir sig ekki að saka hæstv. ráðherra um léttúð heldur þessa almennu nálgun á kjarasamninga sem virðist vera nú við lýði, að grípa til mjög róttæks, ýtrasta úrræðis á allt of veikum grundvelli, það er mín skoðun.

Já, ég held að það sé mjög mikilvægt að átta sig á því að hið alvarlega ástand á heilbrigðisstofnunum virkar að sjálfsögðu sem hvatning fyrir báða aðila til að reyna að ná lausn. Ég spurði hæstv. ráðherra hvort hann hefði lagt fram eitthvert innlegg til að reyna að leysa þessa stöðu hvað hans fagsvið varðar, sem eru heilbrigðismálin, og svarið er að hann hefur komið á fundum. Ég bjóst kannski við einhverju meiru. Hvað stendur til að gera í heilbrigðismálum til að reyna að taka á þeim gríðarlega mönnunarvanda sem mun kannski blasa við enn frekar ef menn setja þessi lög. Hvað stendur til?